Jæja, jæja, jæja.. Ok, ok, ok.. Það er kominn tími á smá blogg.. Enda komnar 3 vikur frá síðasta..
En á þessum þremur vikum er nú ekki mikið búið að gerast nema aðallega hjá Lilju Björk.. Við sjáum bara breytingar á henni dag frá degi nánast núna.. Hún er farin að skríða, og fer útum allt og í allt saman.. Hún er líka farin að sitja og sest líka upp sjálf.. Svo er hún farin að reyna að standa upp við hluti, fer upp á hnéin eða þannig, vona að þið skiljið mig, og reynir svo að tosa sig en hún nær því ekki alveg.. Hún er svo dugleg þessi elska, litli augasteinninn okkar..
En ok, við fórum suður helgina 9-13 nóv. eða rúmlega helgi ok, því Viddi þurfti að fara að tala við einhvern sérfræðing út af mígreninu sem hann er með.. En ok.. Þurfum ekki að fara nánar í það nema heimferðina.. Við fórum heim á þriðjudeginum og stoppuðum í Baulu til að fara á klósettið.. Ok.. Ég fór fyrst inn og svo Viddi þvi við nenntum ekki að taka Lilju Björk úr bílnum.. Viddi þóttist vera hættur að reykja, eða ég vissi ekki annað en hann væri hættur að reykja.. Svo þegar hann kom aftur út í bíl þá fann ég alveg reykingalyktina af honum þó svo hann væri ða reyna að fela það með tyggjói.. En ég er ekki alveg fædd í gær og ég er lík aalveg hrikalega næm á reykingalykt eftir að ég hætti að reykja.. En ok, ég velti mér ekki meira upp úr því að hann hefði verið að reykja.. Svo þegar við erum komin í Víðihlíð þá mætum við löggunni.. Svo sjáum við að hún snýr við og kemur svo á eftir okkur með bláu ljósin.. Við skildum ekkert í því, því við vorum ekki að keyra of hratt.. En ok.. Við stoppum úti í kanti og löggan kemur og biður Vidda um ökuskírteini og spyr hvaðan við séum að koma og hvert við séum að fara.. Síðan lítur hún (löggan) aftur í bílinn og sér Lilju Björk.. Segir svo: "Og þið eruð með barn í bílnum", og horfir svona skringilega á okkur.. Svo biður löggan Vidda um að koma með sér yfir í löggubílinn.. Ok.. Við mæðgur bíðum á meðan og ég skil nú ekkert í því hvað er að taka svona langan tíma.. Svo kemur viddi loksins til baka hlæjandi.. Ég spyr hann nú hvað hafði verið í gangi og þá sagði hann mér að það hefði verið hringt frá einhverjum stað (löggan vildi ekki gefa honum það upp, en við vissum alveg að það var Baula) og sagt að ökumaðurinn á bíl með númerinu MAN U væri undir áhrifum kannabisefna.. Og Viddi var látinn taka eitthvað fíkniefnatest og þurti að bíða eftir niðurstöðunni, þess vegna var hann svona lengi inn í löggubílnum.. En að sjálfsögðu var það neikvætt.. Löggan hló nú líka af þessu og sagði honum að þeim hefði nú líka fundist þetta símtal sem þeir fengu frá Baulu hálf fáránlegt.. Viddi var samt heldur ekkert að segja löggunni það að hann hefði verið að reykja inn á klósettinu þar.. Þóttist bara ekki vita neitt..
En ok.. Nú er alveg hellings ritgerð komin og ég ætla bara að láta þetta nægja í bili.. Þangað til næst.. Bæjó..